Íslandsmótið í Vaxtarrækt 2010
Íslandsmótinu í Vaxtarrækt lauk í gærkvöldi, frábærir keppendur mættu til leiks og því var stemningin á mótinu frábær. Maggi mætti í frábæru formi að vanda, með gott samræmi, hrikalega skorinn og með rákir í löppunum sem aldrei hafa sést áður. Hann vann því sinn flokk, þar sem hann atti kappi við Magga Sam, Benna Olsara og Ívar Bergs. Síðan mættust þeir Alli Páls í heildarkeppninni og þar hafði Maggi Bess einnig betur.