Jæja löngu tímabært að skrifa eitthvað á þessa síðu. Ég tók fjögur mót á síðasta ári og var mjög sáttur við gengið á þeim. Hápunktur ársins keppnislega séð var þegar ég fékk bronsið á EM, sem haldið var í Madrid en ég það er besti árangur sem íslendingur hefur náð í vaxtarækt á erlendri grundu.
Stærsti viðburður ársins í mínu lífi var þó þegar mín þriðja dóttir fæddist í lok mars, sem við skírðum Ísabella Bess og ég held áfram að fjölga mér því við eigum von á öðrum Bess í júní á þessu ári, sem verður strákur. Ég er því ansi ríkur maður. Þannig að það verður nóg að gera hjá mér með litlu krílin.


