Maggi Bess

Myndir frá EXPÓINU og Pro Showinu

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Í dag vorum ég og Kata á Expóinu, þar sem allir frægustu vaxtarræktarmenn fyrr og síðar koma saman. Þar hittum við nokkra góða og þar á meðal hinn eina sanna Ronnie Coleman sem er minn uppáhalds vaxtarræktarmaður fyrr og síðar.... sá LANGFLOTTASTI !

 


Fleiri góðir voru þarna og þar má nefna Dennis Wolf, Silvio Samuel, Toney Freeman og Phil Heath. Kata hitti einnig stjörnuna í hennar sporti, Monicu Brant. Hér koma nokkrar myndir frá deginum, af okkur og stjörnunum. Sjálfum leið okkur eins og stjörnum í dag því það var alltaf verið að fá að taka myndir af "the fit couple" eins og kaninn orðaði það. Þetta er búinn að vera frábær tími hérna í Ameríkunni og gaman að fá að upplifa þetta allt. Bæði að fá að keppa hérna og sjá allt hérna eftir að hafa verið í þessu sporti í 20 ár. Mæli því með þessu fyrir alla sem hafa gaman af þessu sporti að skella sér á næsta ári.

Kveðja
Maggi Bess

 

MYNDIR FRÁ EXPÓINU og PRO SHOWINU    

 


 
You are here: Heim Fréttir Fréttir Myndir frá EXPÓINU og Pro Showinu

Upplýsingar