Haldið var kjör á íþróttamanni ársins hjá Alþjóðasambandi líkamsræktarmanna, en það var vaxtarræktarmaðurinn Magnús Bess sem hlaut titilinn. Þetta er í annað sinn sem hann hýtur þennan heiður en hann var einnig kjörinn á síðasta ári. Magnús var ansi afkastamikill á síðasta ári.
Ferill Magnúsar árið 2009
Við val á íþróttamanni ársins var eingöngu horft til árangurs á árinu 2009
- 1. sæti Íslandsmóti Alþjóðasambands líkamsræktarmanna, 100 kg flokkur.
- 1.sæti Íslandsmóti Alþjóðasambands líkamsræktarmanna, öldungaflokkur.
- 1.sæti heildarkeppni, Íslandsmóti Alþjóðasambands líkamsræktarmanna.
- 1.sæti í norska Grand Prix ,100 kg flokkur
- 2.sæti á Loaded Cup í Danmörku ,100 kg flokkur.
- 6. sæti á Evrópumóti öldunga í Rúmeníu, + 90 kg flokkur
12 manna nefnd velur íþróttamann ársins og valið er úr vaxtarrækt, fitness og þrekmeistaranum.
Úrslit kosninga um íþróttamann ársins hjá Alþjóðasambandi líkamsræktarmanna
Þrjú efstu sætin:
1. Magnús Bess, keppnisgrein: vaxtarrækt
2. Kristín Kristjánsdóttir, keppnisgrein: fitness
3. Katrín Eva Auðunsdóttir, keppnisgrein: fitness
MYNDIR FRÁ VERÐLAUNAAFHENDINGUNNI
LJÓSMYNDARI: UNNAR MÁR
|

