Fréttaflutningurinn á þessa síðu hefur víst eitthvað tafist en keppnisferðin til Osló varð að ösku, því ég komst ekki neitt. Allt útaf þessu blessaða eldgosi. Ástandið var víst eins hjá öllum sem ætluðu að keppa nema hjá norðmönnum og því var frekar fámennt á þessu móti. Tíu voru skráðir í minn flokk en aðeins þrír kepptu.
>> Hér má lesa allt um mótið
Ég fylgdi mínu prógrammi til klukkan fjögur á föstudeginum, en þá varð ég að játa mig sigraðan. En þess má geta að þetta er í fyrsta skipti á mínum ferli sem ég hætti við keppni og það þurfti náttúruhamfarir til þess ;) Ég var að taka það saman og ég hef keppt á þrjátíu og tveimur mótum í vaxtarrækt.
En þess má geta að einn íslendingur keppti á mótinu, Sigurkarl Aðalsteinsson en hann er búsettur í Noregi. Hann náði mjög góðum árangri í -80 kg flokki í vaxtarrækt og endaði þar annar. >> Hér eru myndir frá flokknum hans

