Íslandsmótinu í Vaxtarrækt lauk í gærkvöldi, frábærir keppendur mættu til leiks og því var stemningin á mótinu frábær. Maggi mætti í frábæru formi að vanda, með gott samræmi, hrikalega skorinn og með rákir í löppunum sem aldrei hafa sést áður. Hann vann því sinn flokk, þar sem hann atti kappi við Magga Sam, Benna Olsara og Ívar Bergs. Síðan mættust þeir Alli Páls í heildarkeppninni og þar hafði Maggi Bess einnig betur.
Þrettándi overall titillinn er því í höfn og alls eru því komnir 31 Íslandsmeistaratitlar í vaxtarrækt í safnið. Það var því vel fagnað í gær, enda alltaf gott að uppskera vel eftir langan undirbúning. Í kvöld fer svo fram Classic Bodybuilding karla, Módel Fitness og Fitness kvenna. Einnig verða veitt verðlaun fyrir íþróttamenn ársins hjá IFBB á Íslandi og bæði Maggi og Katrín Eva eru tilnefnd þar.
Úrslit
Heildarsigurvegari karla1. Magnús Bess Júlíusson |
||
Vaxtarrækt karla -90 kg1. Alfreð Pálsson |
Vaxtarrækt karla +90 kg1. Magnús Bess Júlíusson |
Vaxtarrækt Unglingafl.1. Hallgrímur Þór Katrínarson |
Vaxtarrækt kvenna1. Hilda Elisabeth Guttormsdottir |
MYNDIR FRÁ MÓTINU
|