Maggi Bess

Sigursæll tvær helgar í röð !

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
Um helgina fór fram svonefnt Reykjavík Grand Prix mót í Háskólabíói. Keppt var í fitness og vaxtarrækt. Þetta er í fyrsta skipti sem Grand Prix mót er haldið hér á landi og var erlendum keppendum boðið að taka þátt.

Fáir þátttakendur skráðu sig til leiks, en það er von okkar að mót sem þetta er komið til að vera enda gaman að fá sterka erlenda keppendur heim á klakann. Mótið var engu að síður mjög skemmtilegt og það var góð stemning í salnum. Maggi vann sinn flokk og var einnig valinn besti pósarinn. Hann er því búin að vera ansi sigursæll undanfarnar tvær helgar og það verður gaman að fylgjast með um næstu helgi þegar hann keppir þriðju helgina í röð í Osló.  

 

Úrslit

Besti pósari

1. Magnús Bess Júlíusson



Vaxtarrækt karla -90 kg

1. Alfreð Pálsson
2. Jari Stingl
3. Valgeir Gauti Árnason

Vaxtarrækt karla +90 kg

1. Magnús Bess Júlíusson
2. Lasse Pajunoja
3. Benjamín Þorgrímsson

Vaxtarrækt kvenna

1. Hilda Elisabeth Guttormsdottir 

 

MYNDIR FRÁ MÓTINU    


Ljósmyndir: vöðvafikn.net og Unnar Már
 
You are here: Heim Fréttir úrslit móta Sigursæll tvær helgar í röð !

Upplýsingar