Maggi Bess

Brons á EM núna um helgina :)

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
Maggi hafnaði í þriðja sæti á Evrópumótinu í Vaxtarrækt sem fór fram um helgina í Madríd á Spáni. Þetta sé án vafa besti árangur sem íslenskur keppandi hafi náð á erlendri grundu fram til þessa í líkamsrækt.

 

Magnús Bess keppti í + 90 kg Masters flokki. Kristín Kristjánsdóttir var einnig á meðal keppenda
en hún keppti í 15 manna sterkum flokki og hafnaði í 7 sæti. Flestir keppendurnir eru sigurvegarar frá sínu heimalandi sem gefur til kynna styrkleika keppninna.

 

Maggi keppti í + 90 kg Masters flokki. Kristín Kristjánsdóttir var einnig á meðal keppenda, en hún keppti í 15 manna sterkum flokki og hafnaði í 7. sæti. Flestir keppendurnir eru sigurvegarar frá sínu heimalandi sem gefur til kynna styrkleika keppninnar.

Verðlaunahafarnir


Rafael formaður IFBB að óska Magga til hamingju



front_bak

Formið var gríðarlegt. Mynd tekin viku fyrir mót.



Við erum öll hrikalega sátt með árangurinn hjá kappanum enda er hann búinn að leggja mikið á sig til að komast á þennan stað sem hann er á núna. 22 keppnisár í vaxtarrækt að baki, 14 heildarsigrar, 34 Íslandsmeistaratitlar í vaxtarrækt, Fjöldi sigra á mótum á Norðurlöndunum, Fyrrum Norðurlandameistari og nú orðinn þriðji besti í Evrópu.

 

Nú liggur leiðin á ströndina á Benidorm að njóta lífsins með litlu fjölskyldunni, en Maggi var án efa með besta stuðningsliðið og hann átti einnig lang yngsta aðdáandann í salnum því Ísabella litla var með okkur ásamt Viktoríu stóru systur.

familia

 

Sjá fleiri myndir frá mótinu hér

 
You are here: Heim Fréttir úrslit móta Brons á EM núna um helgina :)

Upplýsingar