


Jæja, nú telur maður dagana í næsta mót. Við erum að fara til Finnlands eftir tvær vikur þar sem ég er að fara að keppa á Norðurlandamótinu í vaxtarækt. Ég er orðinn sáttur við formið, þannig að nú er bara að telja niður í að komast á sviðið :).
Margt framundan þetta haustið, veturinn fer í kött því svo ætla ég að keppa á Expóinu hér heima í lok nóvember og svo á Heimsmeistaramótinu í Tyrklandi í desember. Bara fjör framundan !
Þar sem er keppni þar er ég !
Jæja, nú er kallinn að byrja að kötta !
Hvað er betra en að hefja góðan skurð í sumarfríinu ?
Því að þurfa að standast freistingar allt í kringum mann td. grillmat og bjórinn góða, það bara HERÐIR mann !
Fréttaflutningurinn á þessa síðu hefur víst eitthvað tafist en keppnisferðin til Osló varð að ösku, því ég komst ekki neitt. Allt útaf þessu blessaða eldgosi. Ástandið var víst eins hjá öllum sem ætluðu að keppa nema hjá norðmönnum og því var frekar fámennt á þessu móti. Tíu voru skráðir í minn flokk en aðeins þrír kepptu.
>> Hér má lesa allt um mótið
Síða 1 af 3
Alþjóðasamband líkamsræktarmanna, eða IFBB eins og það er skammstafað á ensku (International Federation of Body Building and Fitness) er eina viðurkennda keppnissambandið sem starfar hér á landi og sendir keppendur á heimsmeistara- og Evrópumót.
Ef þú hefur áhuga á að keppa í Fitness eða vaxtarrækt er gott að skoða heimasíðu þeirra á Íslandi.